Já góðan daginn og
gleðilega páska
Já páskadagur er runninn upp fagur og hlýr.
Yndislegt veður úti. Finnst samt slæmt að snjórin sé að fara
hann er búin að vera svo stutt hérna hjá okkur síðast liðna
vetur en svona er það bara. Finnst leiðinlegt að huxa til þess
að ég hafi ekkert farið á vélsleða í allan vetur. Það bara
virðist eitthvernvegin vera að þegar fjölskylda mín er að fara á
vélsleða eða skíði þá er ég bara eitthvenvegin alltaf að vinna
finnst það ekki sniðugt skal ég ykkur segja. En já með páskadag
þá er ég ekki alveg sátt við að fá ekki páskaegg það hefur bara
eitthvern vegin alltaf verið hæuti af páskastemminguni. En ég
fatta samt ekki hvað ég er að væla því ég hef aldrei verið mikil
súkkulaði manneskja. En til að freistast ekki í að fá mér
páskaegg hjá systrum mínum ákvað ég bara að vera að vinna í dag
frá 10-20 í lítilli hverfisverslun. En eitthvernvegin hefur
nammið þar sjaldan freistað mín.
En já nýji lífstíll minn er
allur að komast í gott horf aftur eftir allltof mikla leti og er ég
ekki alveg sátt við mig með það að gera. En eitt fannst mér þó
skrítið að eftir allt þetta sukk hjá mér þá hef ég bara misst smá í
staðin fyrir að taka eitthvað á mig. Mamma vill meina að þetta séu
skilaboð að handan um að halda áfram því ég get þetta alveg einsog
ég er búin að sýna. Þannig að nú er bara að halda ótrauð áfram og
ekki vera með neytt væl
Náði svo að draga vinkonu
mína með í ræktina í gær. Er ekki búin að vera dugleg þar upp á
síðkastið útaf smá vinnuslysi og aumingjaskap en þetta er allt að
koma hjá mér vil ég meina. Það er eiginlega bara langt síðan ég hef
staðið mig svona vel upp í sal. Og var ég mjög stolt af
mér
Svo á morgun liggur leiðin í
eitt stykki fermingu sem ég verð að viðurkenna að mig hlakki mjög
til að fara í því konan sem er að fara að ferma dóttur sína er líka
í ddv og er búin að gera sér ddv borð fyrir okkur sem mér finnst
vera æði sérstaklega því hún er geðveikur kokkur. Mmm..... ég fæ
bara vatn í munin
Á þriðjudaginn liggur svo
leiðin í borgina og kvíður mig alveg smá fyir uppá mataræðið að
gera. En minn ástkæri maður er búin að lofa að hann ætli nú að
hjálpa sinni kellu. En eitt finnst mér leiðinlegt. Hann er að gera
loka ritgerð í heimspeki og eitthverja aðra sem hann á að skila í
loka apríl og byrjun maí og þetta er akkúrat tímin sem ég verð
fyrir sunnan
en það verður bara að hafa það.
Svo vil ég þakka þeim sem
skirfuð hughreystandi comment hjá mér
Forkurinn í páskastuði í
vinnuni
E.S. ég var búin að skrifa
miklu meira áðan og ég gt ekki gert copy paste þannig að það
eiddist allt og ég varð að skrifa þetta allt aftur og gerðið það
núna í wordinu
langaði bara til að deila þessu með
ykkur.